valdajulblog

velkomin

26.04.2009 23:24:35 / lalli

Ég hef fengið nóg...

Þá er það ljóst að rithöfundur á tvöföldum launum, skáldkona og barnabókahöfundur ásamt  kjaftaski sem ber enga virðingu fyrir fólki eru komin á þing Íslendinga. Þetta er það sem sumir kusu og vildu skipta út fyrir reynslu og dugmikla þingmenn. Það er líka reynsla sem við þurfum. Þetta fólk hefur enga reynslu í þingstörfum (bara ritstörfum).  Þau segjast vera rödd fólksins, eru hin 59 ekki kosinn af fólki. Trúið mér þetta fólk er bara að hugsa um sig sjálft, hefur enga hugsjón,  engan þrótt bara getur kjaftað út í eitt. Nú eins og stakir standa er flugfreyja í forsæti, kæmi mér ekki á óvart að hennar vilta lið myndi skipta um gat og leita til þeirra sem lifa í ímynduðum heimi skáldsins og kjaftasksins. Samfylkingin er samansuða af liði sem hefur meira og minna allt verið í fýlu allt sitt líf. Flest þeirra hafa klofið sig út úr öðrum flokkum eða hreyfingum og geta ekki sætt sig við að vera undir í lýðræðisbaráttu. Enda sést á hennar forystu hvað hún er svakalega villt. 
Trúið mér "Ykkar tími mun koma til að fara eftir nokkra mánuði". Það verður hér stjórnarkreppa og kosið verður á ný.  Þjóðfélagið mun verða í upplausn og kostnaður sundrungar verður mikill.  Þau sem ekki geta sætt sig yfirvald mun falla fyrir yfirvaldi.  Vinstri grænir mega eiga það að vera samstilltur hópur, allavega sem þau sýna okkur. Nema konan sem vaðr ráðherra en átti aldrei að vera. Enda datt hún út af þingi þó svo flokkurinn ynni góðan sigur.  Framsókn, eins og frormaðurinn sagði, "Það er engin framsókn án Framsókn"  Maður hefur einhverskonar föðurlegt traust á því sem hann segir. Kemur í ljós. Ætla ekki að eyða mörgum orðum á Sjálstæðisflokkinn en við þurfum á hinum að halda.





» 0 hafa sagt sína skoðun

26.01.2009 21:32:35 / lalli

Gleymir sér

Þegar maður er á facebook þá gleymir maður að blogg.

En kannski er þetta málið. Vonandi bloggar maður áfram, nú er nóg að blogga um.

Kv. V.Júl

» 0 hafa sagt sína skoðun

27.11.2008 00:59:20 / lalli

Þegar nálgast jólin frh.

Nú er nálgast jól er gott að setja í jólagírinn og vera svo lítið hátíðlegur.
Hér er texti eftir Júlíus Th. karl faðir minn

1.erindi

Í kvöld er ég einn horfi á sporin í snjónum
sjá enn eins og fyrr líður stund nærri jólum
í stjarnanna fjöld leiftrar sagan sem forðum
ég sé allt sem aldrei var talað með orðum. 

2.erindi

Sjá ljósin svo kær hvar er friður míns hjarta
sjá snæþakta jörð fagra Íslands svo bjarta
Kertin þá loguðu skær eins og sólin
og móðir mín bað þess að bjart yrði um jólin.
Kv. VJ

» 1 hafa sagt sína skoðun

06.11.2008 20:44:54 / lalli

Fréttapistill handa Fanney

Er í Kópavogi í brekku kennda við sel.
Er að starfa við golfið.
Já fór til Spánar.
Það var gaman.

Hef það fínt.:p:haha::d8|



» 4 hafa sagt sína skoðun

03.11.2008 18:25:37 / lalli

Leiði

Leiði er úps að líða
leti nærri lagi
Reiði er rót að kvíða
ragnandi orðaflagi.

» 1 hafa sagt sína skoðun

16.10.2008 22:13:37 / lalli

Hugur minn

Mig dreymir stundum drauma
dagsins amstur gleymist
Um þig ég þrái, hugsa
þá ást er sönn reynist.

Þeir dagar dásemt unaðs
djúpir hlýjir stundum
Manstu við mátum annars
magnaðar saman undum.

Bros á móti brosi
blær í augum, ástin
Hlátur, grátur gleði
gefandi öðru, djásnin.

Prinsessa var hún piltur
præsless gull af konu.
Hefðir þú hamið, stiltur
hugur þinn var of viltur.

Loks er ljósið kvikknar
kannski er engin heima.
Ástin undir, á kikknar
á, það er vont að gleyma

Mig dreymir stundum sælu
svellandi sviti rennur
Hugur minn stopp, dælu
drengur, hugur þinn brennur.

Ég alltaf naut að nudda
njóta munn og gæla.
En nú er þessi skrudda
svakaleg orðin þvæla.

Að lokum ljósa, kæra
látum minnig í halda.
Engan ég vildi særa
sela vi, frá Valda.

» 0 hafa sagt sína skoðun

13.10.2008 16:26:18 / lalli

el spaneu de porte

Sól á himni skín svo skært
svarta myrkrið víkur
Bros í hjarta blítt og tært
bræðandi taugar strýkur.

Guð á himni gefðu þeim
gleði sem sorg á hrærir
Lyftu upp lund færðu heim
ljós sem við öllu bærir.

Nóg er bölið, beljandi
barlómur tungu vefur.
Samt er ljósið, lýsandi
líf í þann sem sefur.

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.09.2008 19:04:53 / lalli

Golf fyrir þá sem minna mega sín

Golf fyrir þá sem minna mega sín fór fram sunnudaginn 28.okt.

Gekk allt vel fyrir sig og safnaðist ágætis aur fyrir kaffistofuna.

Með þesu móti  hefur Samhjálparkaflanum í mínu lífi verið lokað.
Að minnsta kosti í bili.
Það er nú alltaf þannig að það sem er sett í hjartað manns af Guði er erftitt að taka úr.

Kv. Valdi Júl


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.09.2008 22:48:51 / lalli

Ó sál mín sál

Bitur,bitur er mín sál,
brostnar vonir tárast.
Að missa hug og mál,
maður það er sárast.

Vinur hvar er vináttan,
var hún kannski aldrei.
Burt hún fer er baráttan,
blæðir í djúpi, kyrr-þey.

Nú er nóttin döpur,
nístandi köld, myrkur.
Hvar er ljósið, vinur,
villtur, veikur, kyrktur.

Veit að vilji veldur,
veikri von um daga.
Þú sem að sári seldur,
syrgjandi reynd´að laga.

V.Júl



» 0 hafa sagt sína skoðun

04.09.2008 02:39:03 / lalli

Aðeins

Látbragð litlra manna leikur
lætur hrylling súlu titra.
Langur er stuttur smeykur
milli heimskra og vitra.

Lof sé hátt í helgi haft
hjartanu standa nærri
ekki nóg að opna kjaft
orð svo krafturinn færi.

Liggur í lofti tímar enda
leikurum öllum fjölgar
Skilaboð Guðinn er að senda
sannleikur komin til bý og borgar.

Leyfðu svefni réttlátan líða
hvíld og frið um þessa nátt
Mætti í sálum allra blíða
barnalega hvíla í sátt.

V.Júl


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.09.2008 00:12:05 / lalli

EF

Oft mig langar að leggja til
ljósi á sálu þína.
En slökkt og engin birtuskil
umlykja sálu mína.

Ef hróp er nóg fyrir kalda sál
kraftur af himni kæmi.
Þá held fyrir mig sé eintómt tál
alkuldi einn mér sæmi.

Oft hef ég grátið tárum beyskum
brotin í báða enda.
Barinn með orðum sárum breiskum
tími til komin að lenda.

Ef allt væri eins og Guðinn vildi
gæfulegt lífið væri.
En maðurinn viljann öðruvísi skildi
og gaf engu öðru færi.

V.Júl


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.08.2008 18:22:14 / lalli

Draumar

Nú er mál að ég fái útskýringar á draumum sem mig dreymir orðið svo til meira en mér huggnast.

Ég get ekki nákvæmlega farið í smáatriði en mig dreymir mikið fólk sem er ekki á lífi lengur. Þessir draumar eru ekki martraðir né rugl, heldur samræður. Oft mjög langar og skiljanlegar.

Veit einhver eitthvað um þetta?

kv. Valdi Júl

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.08.2008 22:59:04 / lalli

Aríal metúbba mede

Stundum þegar ég sé hversu margir heimsækja síðuna mína, þá fer ég í þann gír að gera grín í skrifum mínum með undirtóni hæðninar. Nú er ég hættur því og ætla að skrifa bara eithvað að viti. Svo er annað mál hvað fólki finnst vit í.

Ég hef ekki mætt í kirkju síðan ég veit ekki hvenær. Hef ekki stigið inn i Stangarhyl frá því í vor. Það merkilega er að Guð er hvorki nær mér né fjær. Hann hefur ekkert minna eða meira samband við mig. Það er bara fólkið sem er mér fjær og hefur ekki samband við mig og svo öfugt.

Nú fer sumri að halla og rétt rúmur mánuður eftir af golfstarfinu og þá tekur eitthvað annað við. Hvað það verður veit ég bara ekki. Fyrst tek ég mér frí og nota ferðina sem ég vann í sumar.
Hlakka til.




» 0 hafa sagt sína skoðun

10.08.2008 14:43:39 / lalli

Ha ha góður

Er búin að liggja með tak í baki í 3 daga. Er að lagast. Þetta er kannski ekki draumur á þessum tíma eða nokkurn tíma.

ps. Rosalega er gott að vita hverjir eru vinir manns sannir og trúfastir. Það sparar svo mikinn tíma og orku.

Kv. Valdi Júl


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.07.2008 04:04:32 / lalli

Good morning

Betra er að lifa í sátt en með holdið hrátt.



» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 26 apríl
Heimsóknir
Í dag:  2  Alls: 44650
Dagsetning
21. mars 2010
Leitarbox

Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.